Ástarsorg.....

Jæja eitthvað er ég með þörfina fyrir það að röfla núna . Skrítið hvernig lífið heldur alltaf áfram jafnvel þegar maður á von á að það geri það ekki.  Ég hélt um daginn að ég væri alveg við dauðans dyr af ástarsorg hjartaði í méli og lífið ónýtt.  Óhófleg dramatík er mér ekki algjörlega framandi ef einhver er að velta því fyrir sér .

Og rétt í því sem ég hélt að ég væri alveg að deyja, komst ég að því að sumir hafa bara ekki hugmynd um hverju þeir eru að tapa . Svo ég gerði samning við sjálfan mig ....... Ég skildi aldrei framar sitja drauma  og þarfir annarra ofar mínum eigin........Það er bara ekki þess virði.

Kv Eva


Kosningar í maí ?

Og hvað á maður að kjósa...

Ég vil nýtt fólk í stjórnmál á Íslandi, en spurningin er hvar er þetta fólk að finna ....

Ætli það endi með því að við þurfum að fá útlendinga til þess að stjórna landinu á ný ég bara spyr?

Og kannski er það þegar orðið þannig við þurfum jú að leita á náðir annarra þjóða, því við eigum enga peninga..... Ég persónulega skammast mín fyrir það hvernig málum er háttað hér og hvernig við höfum klúðrað lýðræðinu okkar.............hummm

Kv strengjabrúðan.


Ég ...................

Ég velti því stundum fyrir mér hversu miklu auðveldara lífið væri ef maður gæti séð útkomu gjörða sinna áður enn maður stekkur af stað. En ég er víst ekki búinn þeim hæfileika , verst finnst mér þegar að tilfangaleg hvatvísi mín særir þá sem mér þykir vænst um. Ég hef alla tíð átt mjög erfitt með að stjórna tilfinningum mínum ég finn hlutina mjög oft allt of sterkt.

Og það veldur mjög öfgakenndum  viðbrögðum  af minni hálfu ég velti því fyrir mér hvort þessi skortur á tilfingralegri húð hafi með það að gera að ég var misnotuð fyrst kynferðislega þegar ég var 5 eða 6 ára í heita-læknum í Öskjuhlíð af algjörlega ókunnugum manni . Þessi reynsla opnaði svo dyr fyrir aðra sem komu seinna allir mér ókunnugir það var eins og að þeir vissu að ég gæti með engu móti borið hönd yfir höfuð mér. Vítahringurinn var hafinn .

Ég hef nú samt verið það lánsöm að eignast 3 yndisleg börn með góðum manni. Þó að leiðir okkar hafi svo skilið seinna . Enda var ég of upptekinn við það að kljást við eigin veikindi til þess að sinna okkar sambandi nokkuð,  ofan á ýmsa andlega vankanta og mikla veruleika hræðslu . Hef ég ekki alltaf verið heilsubest í líkamanum og ég velti því fyrir mér hvort þetta kannski bara tengist allt. Eins og er það tilviljun að ég hafi fari í 2 fóstureyðingar og seinna misst legið , eða tengist leg missirinn misnotkuninni ? Þessu velti ég fyrir mér fram og til baka og hef bara komist að einni niðurstöðu það er kominn tími til þess að halda áfram..........................Smile


Sjálfselska ?

Í óendanleika lífs míns á ég ekkert svar lífið er hvorki gott né slæmt það bara er. Allt frá því að ég var lítil stelpa hefur mér fundist ég bera ábyrgð á hamingju fólksins í kringum mig. Og ég haf rembst eins og rjúpa við staur við að láta allt falla í ljúfa löð í kringum mig og að allir séu nú glaðir og ánægðir , það hefur ekki tekist sérstaklega vel því meira sem ég rembist því óhamingjusamara verður fólkið í kringum mig. Svo ég hef ákveðið að hætta þessum Florence Nightingale leik mínum og fara á námskeið í sjálfselsku.

 

Kv eiginhagsmunar Evan


Takk kæru mótmælendur.....

Rosalega hugsa ég mikið þetta er bara alveg magnað ef ég væri eins dugleg að framkvæma og ég er að hugsa þá væri nú gósentíð hjá mér. Og ég mundi sífellt vera á þeyttingi um borg og bí. Á hraðferð eftir götu lífsins en þannig er það bara ekki  ég er nefnilega frekar löt og værukær.

Ég hef einmitt verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að skella mér og mótmæla eins og góður borgari ætti að gera....En allt kemur fyrir ekki ég er of löt,, svo hræðist ég svona margmenni og þarf helst að vera við skál ef það eru fleiri en 4 í sama herbergi og ég .

Ég dáist nú samt af fólkinu sem er búið að standa vörð um lýðræðið fyrir mína hönd.  Og ef guð og gæfa lofar hristi ég af mér þetta slen og fer og læt heyra all illilega í mér , ég vona bara að ég fái ekki skítapoka í hausinn . En fyrst þarf ég að komast út í búð.

 Svo ég seigi bara takk takk kæru mótmælendur en ekki þeir sem henda hellum og saur.Smile


Bráðum verð ég stór...

Þegar hún hafði loksins fullorðnast leit hún til baka yfir farinn veg og lagði undir flatt.... Þetta voru búinn að vera viðburðarrík ár. Og allt frá því að hún mundi eftir sér var hún búinn að vera með þennan hnút í maganum.

Úr þessu ætti hnúturinn að vera orðin eins mikill hluti af henni og hjartað sjálft en einhvernmegin passaði hann illa og olli henni verulegum óþægindum það var alveg sama hvernig hún reyndi að koma sér fyrir  henni  leið ekki vel, hnúturinn var eins ofvaxið fóstur  og lítið pláss eftir fyrir nokkuð annað...............


Er ég svona áhugaverð ??

Vegna mikillar eftirspurnar frá vinum og vandamönnum hef ég ákveðið að byrja aftur að blogga. Ekki hef ég hugmynd um hvað þeim finnst svona áhugavert við röflið í mér,  mér hefur alltaf þótt ég frekar „plain“ .....

Stundum tekur lífið óvæntum breytingum okkur algjörlega að óvörum, mitt gerði  það núna í maí síðastliðnum það tók mig eiginlega í rassgatið.. Og ég af mínu alkunna jafnaðargeði brást við af miklum þroska ég fór í fýlu..... Og er eiginlega búinn að vera í fýlu síðan milli þess sem ég hef lagst niður og grenjað af miklum eldmóð,,,, skemmtilegt ekki satt.

Mér hefur nefnilega reynst erfitt að finna mína hillu í lífinu og fullorðnast og hef velt því fyrir mér hvort það sé vegna algjörs hæfileika skorts af minni hálfu og hvort ég sé hugmyndarfræðileg ófrjó.. En eftir þrálátar pælingar hef ég komist að þeirri niðurstöðu  að ég hef marga óvenjulega og ótrúlega hæfileika, ég get,,,,, t.d talið ljósastaura af mikilli  áfergju og veit nákvæmlega hvað það eru margir ljósastaurar á milli staða sem ég fer á ... Ég fer sko ekki á marga staði stundum getur ein búðarferð verið mér algjörlega ofviða og ég byrja öll að skjálfa og svitna af tilhulsunni einni saman smart ekki satt. Ég hef í gegnum tíðina leitað til lækna vegna þessara annmarka minna og þeir hafa sagt mér að hausinn á mér sé eitthvað vitlaus tengdur og það valdi þessari ofurviðkvæmni minni . Skildi heilablæðingin sem ég fékk hér um árið tengjast þessu eitthvað eins gott að spyrja að því í næstu ferð til læknisins.......???


hvað segið þið öll :)

Búið að vera brjálað að gera hjá konunni og hún hafði ekki fyrir því að blogga ástæðan fyrir þessu bloggi er að henni vantar félagsskap. Væri til í að stofna bókaklúbb eða eithvað svoleiðis og hitta ný andlit hvað segið þið um það :)

 

Kv Forvitin


Tíminn fljótur að líða .........blabla..........

Ég og elsti sonur minn vorum að tala saman um daginn, þegar að ég fattaði að hann er að verða 16 ára núna í desember eða jafn gamall og þegar ég varð ólétt af honum, ég horfði á hann um stund og velti því fyrir mér hvert tíminn hefði flogið...

Svo fór ég að hugsa um það hvernig ég fór að því að ala upp svona yndislegan dreng,Halo ég pæli líka í því þegar ég sé hann og vini hans og vinkonur tala saman, hvað ég var mikið barn þegar hann fæddist það má segja barn að ala upp barn ,farin að leigja með kærastanum/pabbanum.  Hann var 19 ára svaka töffari Cool og núna 17 árum, 2 börnum, basli og miklum veikindum seinna á ég þennan yndislega unga mann sem er stoð og stytta mömmu sinnar og ekki hjálpar sú 12 ára Heart minna til þó gelgjan sé stundum að ganga af henni.

Þetta er ekki búið að vera auðvelt en samt margfalt þess virði og allar fórnir sem ég hef fært gerði ég með glöðu geði ég elska þessa krakka mína og er að rifna úr stolti yfir því að við höfum gert þetta allt saman 2 ein ég og pabbi þeirra við höfum verið svo ótrúlega heppinn að eiga hvort annað aðInLoveSmile 

 Kkv monthænan.

 

 


Fátækt er raunveruleg á Íslandi.

Ég velti því mjög oft fyrir mér hvernig að ófaglærðar sjálfstæðar mæður í láglaunastörfum fara að því að lífa út mánuðinn ég meina hvernig er hægt að lifa eins og dæmið hér að neðan sýnir?Woundering

",,Það að vera einstæð móðir á vinnumarkaðnum er klárlega dapurlegasta staðan sem hægt er að vera í. Vinnan er mikil, litlir peningar til að kaupa mat handa sjálfri sér og börnunum. Þú getur kannski keypt slátur á útsölu.

Þú hefur ekki efni á neinum sköpuðum hlut og engan tíma til aðsinna krökkunum. Þetta ástand gengur á engan hátt upp,” sagði viðmælandi. Kona sem hann þekkir fær 116.000 kr. útborgaðar á mánuði fyrir fulla vinnu að við bættum u.þ.b. 30.000 kr. á mánuði í meðlag; hún greiðir 40.-50.000 kr. í leigu í félagslega kerfinu og matur fyrir þrjá getur ekki farið undir 1.500 kr. á dag.

Þannig fara nær 100.000 kr. bara í húsnæði og mat. Þá á hún eftir að greiða dagvistunargjald fyrir eitt barn, hita og rafmagn, símreikninginn og e.t.v.strætókort. Launin duga ekki fyrir helstu nauðþurftum. Hún hefur hvorki efni á fötum né skóm á börnin, skólaferðalögum þeirra, heitum mat í skólanum, hvað þá tómstundum eða bíóferðum fyrir þau eða sjálfa sig. Hún getur ekki greitt lækniskostnað, þó hún fari í heilsugæsluna og alls ekki tíma hjá sérfræðingi. "

 ,,Mér finnst ekkert skrýtið að fólk gefist upp við þessar aðstæður!” sagði viðmælandinn. Í nýlegrigrein Hörpu Njáls (2006) kemur fram að stór hluti þeirra sem stunda láglaunastörf eru konur,m.a. við menntun og uppeldi barna á leikskólum, umönnun aldraðra og sjúkra og við gæslu og stuðning í grunnskólum."

"Hún nefnir þar dæmi um unga konu, með eitt barn á framfæri, sem vinnur sem ófaglærður starfsmaður á leikskóla í 100% starfi. Miðað við tekjur hennar (100%starf, meðlag og barnabætur) í janúar 2005 vantaði 47.000 kr. mánaðarlega (eða 25,5%) til að tekjur hennar dygðu til lágmarksframfærslu. Viðmælendur skilja af hverju einstæðar mæður með litla menntun gefast upp á vinnumarkaðnum. Á vissum aldri eru börnin veik til skiptis og ekki víst að atvinnurekendur séu umburðalyndir gagnvart því. Þunglyndi meðal ungra, einstæðra mæðra er algengt, enda hefur langvarandi þreyta og peningaleysi slæm áhrif á geðheilsuna. Sjálfsmat kvennanna molnar svo niður hægt og rólega.""

Tekið úr Bæklingnum Hvar þrengir að. Rauðikross Íslands maí 2006

Lesið bæklinginn hér.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.