Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
Hamingja hvað er það ?
30.9.2009 | 16:37
Stundum reynist mér algjörlega ómögulegt að skilja lífið, þeim stundum bregður þó fyrir að ég þykist sjá glita í einhverskonar skilnings á því djúpt í iðrum eigin vitundar . Ég hristi þó fljót hausinn yfir eigin hugsunum, brosi út í annað og held áfram lífsbaráttunni. Mér lærðist snemma í þessari baráttu minni að jákvæðni og æðruleysi eru bestu vopnin, þó ekki sé alltaf auðvelt að halda því hugarfari og mér fallist stundum hendur og bölvi út í loftið af mikilli innlifun.
Heiðarleiki finnst mér afar mikilvægur, að koma til dyranna eins og þú ert klæddur. Að seigja frá því þegar þú ert hrædd, óörugg ,einmanna, reið og full vanmátar. Upplifa ekki allir svoleiðis augnablik og eru þau ekki alveg jafn mikilvæg og þau augnablik sem eru full af gleði, tilhlökkun, hlátri og fullvissu ?
Og svo þessi stóra spurning er ég hamingjusöm, ég held því fram að ég sé það. Stundum er ég beðinn um að rökstyðja það og útskýra, en get það ekki....... Þýðir það þá að ég sé ekki hamingjusöm, er hamingjan mælanlega eining ? Ef ég er hamingjusöm þýðir það þá að ég verði aldrei hrædd ,óörugg, einmanna, reið osfrv. .......................... ?
Kv pælarinn......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Samsæriskenningar..........
26.9.2009 | 00:54
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
The Living Matrix ...mikið að spá í þessu samhliða því að fylgjast með trúarumræðu á blogginu :)
23.9.2009 | 00:39
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Arghahaha þetta finnst mér fyndið,,,,, ég er svo sick ;)
22.9.2009 | 01:58
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Religuious með Bill Maher, ég er haldinn heimildarmynda fíkn .......
20.9.2009 | 14:48
Horfði á þessa mynd í í gærkveldi, hló alveg endalaust Bill er góður.
Talandi um heimildarmyndir , sem snerta trúarbrögð þá er *Deliver us from evil* mjög góð líka. En náttúrulega af allt öðrum meiði......... Í dag er sunnudagur og ég ætla að leggjast í heimildarmynda sukk með tölvuna í hinni ohh svo lovely
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjálp!!! Ratleikur ........
19.9.2009 | 17:08
Tók að mér að búa til ratleik fyrir hóp að 9 ára krökkum , hef ekki hugmynd um hvernig ég á að gera það hehehe,,,,... Eitthvað svo líkt mér að seigja já ekkert mál ég skal gera það, svo sit ég hér og klóra mér í hausnum.... Gjörsamlega clueless............
Er einhver þarna úti með hugmyndir eða uppkast að einföldum ratleik sem hann/hún getur bent mér á.......
Kv Clueless
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Held mikið upp á þessi mynbönd með Albert A Bartlett ...
19.9.2009 | 01:33
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Halldór Laxness.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)