Andvaka........
27.1.2009 | 01:37
Andvaka eina ferðina enn, þetta er alveg merkilegt með mig ég get geispað og gapað allan daginn lon og don og nenni yfir ekki að halda mér vakandi á daginn . Af því að mér þykir þetta allt svo hundleiðinlegt... Svo hlakka ég bara til þess að fara að sofa að fá að svífa inn í draumalandið og njóta mín þar ..... Svo loksins þegar það er kominn svefntími, fer hausinn á mér á flug ...hugsi hugsi hugsi.
Ég reyni við litlar undirtektir að seigja hausnum að drulla sér í svefn en allt kemur fyrir ekki . Best að telja kindur milljón og 2 milljón............. nei það gengur ekki hann alveg harðneitar að hvíla sig og hamast eins og hamstur á hjóli..... En leið og klukkan fer að nálgast þann tíma sem ég á að koma mér á lappir er eins og það slökkvni ekki bara á heilanum heldur dofnar allur skrokkurinn og þá hefjast samningaviðræðurnar við hann ,,, þú verður að fara á fætur börnin eru að verða of sein í skólan neiii ég er veik börnin eru veik seigir heilinn og vil ólmur fá að sofa í friði. En ég sigrast á heilanum og líkamanum og tekst fyrir kraftaverk að koma okkur öllum út ótrúlegt ekki satt.......
Athugasemdir
Ég hef átt nokkur svona blogg í gegnum tíðina velkomin í hópinn
Brynjar Jóhannsson, 27.1.2009 kl. 10:23
Ég þakka fyrir það bara skemmtilegt að vera ekki ein . Mér líður strax betur að vita af öðrum þarna úti :)))
Eva , 27.1.2009 kl. 13:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.