Kvíðakast
20.8.2007 | 20:55
Fékk líka eitt svona gasalega skemmtilegt kvíðakast yfir komandi vetri, bara trylltist úr áhyggjum yfir öllu því sem ég þarf að skipuleggja og koma í verk. Ég er alltaf alveg viss um það á hverju einasta hausti að ég eigi bara ekki eftir að standa undir þessu öllu saman uppeldi,skóli,þrif,vinna,þvottur,heimanám,þrif,fótbolti.sofa,elda,þverflauta osvfrv úff svitn svitn en það tekst alltaf einhvernvegin að púsla þessu öllu saman.
Og ég er alltaf jafn hissa á hverju vori, að ég skildi hafa komist í gegnum þetta allt saman kraftaverk Tek mér svo gott sumarfrí slæ öllu upp í kæruleysi og fríka svo út þegar að haustið nálgast á ný og veit ekkert hvern ég á að fara að því að skipuleggja og aga sjálfa mig upp á nýtt.
Er ekki hringrás lífsins dásamleg
Kkv Stressfríkið
Athugasemdir
one day at a time!
ef einhver stendur af sér mikla og flókna hluti þá er það þú beibí!
hefur gert það milljón sinnum og átt eftir að gera það milljón sinnum í viðbót!
það er svo mikið Eva
knús á þig
Halla (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 21:19
Fékk einmitt þessa tilfinningu í kvöld. Eftir 2 daga byrjar stríðið að koma syni mínum 14 ára í skólann kl:8:10. Ég er smá kvíðinn fyrir því svo ég leyfi mér að vaka aðeins lengur í kvöld, éta snakk og hafa það huggó.
Takk fyrir uppbyggileg orð til mín....Og gangi þér vel að draga þinn vaggn...
Halla Rut , 21.8.2007 kl. 01:05
Já, þú ert dugleg og samviskusöm og þetta tekst alltaf hjá þér. Það veit ég.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 21.8.2007 kl. 11:28
>>>>Takk elskurnar jamm unglingar eru yndislegt fólk ég á einn sem var að byrja í menntaskóla, hann hefur verið þvílíkt hamingjusamur á morgnana undanfarin ár
Eva , 22.8.2007 kl. 22:10
ég er að hugsa um að auka álagið á þér frk kvíðasjúklingur og heimta NÝTT BLOGG!
NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!-NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!-NÝNÝTT BLOGG!- TT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!- NÝTT BLOGG!
Halla (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 10:11
Kannast svo við þetta, var að byrja á mínu stressferli í vikunni, skólinn byrjaður hjá krökkunum á miðvikudaginn var, og á enn eftir að kaupa fleiri föt á þau, skó, skrá þau í áhugamálin, kaupa fleiri skólavörur, o.s.fr.
Þetta reddast allt saman, ég veit það, af því að mér líður alltaf eins og þér á vorin, hvernig reddaðist þetta allt saman? Við erum bara súper mömmur, höldum áfram að vera það, þó svo að við höfum ekki hugmynd hvernig við förum að því að vera svona súper
Bertha Sigmundsdóttir, 26.8.2007 kl. 09:59
Hæ skvís og takk fyrir síðast!..
Hálf hallærislegt ... þekkti alla og vildi tala við alla... :)
Ég hlakka til að heyra frá þér og stefnum á góðan kaffihitting ;)
kv nína
Nína (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 19:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.