Dauðaósk?

Ef þú ert haldinn dauðaósk, vinsamlegast haltu þig þá af götum okkar hina takkWink

Ég barasta meina það #svitn svitn#  ef ég er ekki bara kominn með grátt hár! Var að keyra ofan af kjalanesi áðan hingað heim inn í mosfellsdal og eins og  svo oft áður var annað hvort maður haldinn dauðaósk Shocking eða einhver sem heldur að hann sé súpermann Ninja að keyra á eftir mér......Ég var á 80-90 og á undan mé var bílaröð full af tjaldvögnum og svoleiðis,,,,,,

Súpermanninn Ninja fyrir aftan þurfti náttúrulega að drífa sig til Reykjarvíkur að bjarga ketti ofan úr tré, þannig að það er algjörlega skiljanlegt að hann skildi hætta lífi okkar hinna við það að reyna að taka fram úr, hetjan endaði 5 bílum á undan mér inn í mossó.... ætli að hann sé búinn að missa flugprófið.........

kkv lífsviljinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Það er einmitt málið þeir halda að þeir séu Súperman, ósigrandi hetjur æskunnar.

Halla Rut , 14.8.2007 kl. 00:51

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Svona menn eru glæpamenn.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 14.8.2007 kl. 16:54

3 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Sammála báðum hér að ofan...

Bjarney Hallgrímsdóttir, 14.8.2007 kl. 21:51

4 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Jæja - ég reikna með að hann hafi hærri blóðþrýsting en þú 

Halldór Sigurðsson, 16.8.2007 kl. 22:16

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Það er nefnilega kaldhæðnin í þessu. Með því að leggja líf sjálfs síns, fjölskyldu sinnar og allra sem á vegi hans voru, í hættu, þá flýtti hann ferð sinni kannski um 10 mínutur. Í mesta lagi. Skrýtið hvað margt fólk er fífl.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 15:19

6 Smámynd: Eva

Jamm blóðþrýstingurinn minn er fínn

Eva , 20.8.2007 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband