Klukk Klukk hvern andsk á ég að segja!!!

1. Ég get verið ferlega úrill og öfug á morgnana.Sleeping

2. Mér finnst minnimalismi ekki smart ég er ekki einu sinni viss um að ég kunni að skrifa eða bera fram orðið.

3. Mér finnst ferlega fúlt að vera ekki lengur með leg, eggjastokka og allt tilheyrandi, ja´þó svo að ég sé svo lánsöm að eiga 3 yndisleg börn finnst mér það samt algjör bömmer, jaam ég veit ég er kominn ferlega stutt á hinni kosmísku þroskabraut.

4. Það fer stundum alveg svakalega í taugarnar á mér þegar fólk segir "það hefði geta verið verra" og " guð leggur ekki meira á neinn heldur en að hann getur borið". Miða við ástandið á taugakerfinu á mér ætla ég að leifa mér að vera ósammála..

5. Ég mála og bý til sögur í hausnum á mér.

6.Ég er stundum alveg skíthrædd og óörugg.Sick

7.Mér finnst ástarsögur æðislegar og ég leggst stundum í algjört ástarsögu sukk ,,,, roðn roðnBlush

8. Mér finnst orðið kvennaklám ógeðslega hallærislegt ég meina er ekki klám bara klám?

 ps Berta ég þarf að spyrja vinkonuna hvernig Ameríkana hún vill ég er svo heppinn að ég á einn svoleiðis sjálf,,,,,,, en hann bara grenjar ekki mamma hans er íslensk þannig að það getur verið að tárakyrtlarnir hans séu bara svona svakalegir víkingar, ég spurði hann einu sinni af hverju hann grenjaði aldrei eina svarið sem ég fékk var bara svona blank steerTounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gaman að lesa þetta.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.8.2007 kl. 13:13

2 Smámynd: Eva

Eva , 12.8.2007 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband