Ég ...................

Ég velti því stundum fyrir mér hversu miklu auðveldara lífið væri ef maður gæti séð útkomu gjörða sinna áður enn maður stekkur af stað. En ég er víst ekki búinn þeim hæfileika , verst finnst mér þegar að tilfangaleg hvatvísi mín særir þá sem mér þykir vænst um. Ég hef alla tíð átt mjög erfitt með að stjórna tilfinningum mínum ég finn hlutina mjög oft allt of sterkt.

Og það veldur mjög öfgakenndum  viðbrögðum  af minni hálfu ég velti því fyrir mér hvort þessi skortur á tilfingralegri húð hafi með það að gera að ég var misnotuð fyrst kynferðislega þegar ég var 5 eða 6 ára í heita-læknum í Öskjuhlíð af algjörlega ókunnugum manni . Þessi reynsla opnaði svo dyr fyrir aðra sem komu seinna allir mér ókunnugir það var eins og að þeir vissu að ég gæti með engu móti borið hönd yfir höfuð mér. Vítahringurinn var hafinn .

Ég hef nú samt verið það lánsöm að eignast 3 yndisleg börn með góðum manni. Þó að leiðir okkar hafi svo skilið seinna . Enda var ég of upptekinn við það að kljást við eigin veikindi til þess að sinna okkar sambandi nokkuð,  ofan á ýmsa andlega vankanta og mikla veruleika hræðslu . Hef ég ekki alltaf verið heilsubest í líkamanum og ég velti því fyrir mér hvort þetta kannski bara tengist allt. Eins og er það tilviljun að ég hafi fari í 2 fóstureyðingar og seinna misst legið , eða tengist leg missirinn misnotkuninni ? Þessu velti ég fyrir mér fram og til baka og hef bara komist að einni niðurstöðu það er kominn tími til þess að halda áfram..........................Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband